Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mið 18. júlí 2018 07:00
Ingólfur Páll Ingólfsson
Insigne myndi frekar velja Messi en Ronaldo
Insigne kann betur við Messi sem fótboltamann.
Insigne kann betur við Messi sem fótboltamann.
Mynd: Getty Images
Cristiano Ronaldo hefur verið mikið á milli tannanna á fólki eftir félagsskipti sín til Juventus en Lorenzo Insigne, leikmaður Napoli segir Lionel Messi vera betra fótboltamann.

Insigne segir að Ronaldo muni ekki geta sigrað leiki upp á sitt einsdæmi í Seria A. Ronaldo og Messi hafa lengi eldað grátt silfur saman í spænsku úrvalsdeildinni og það virðist ekki skipta máli þó að þeir séu í sitt hvorri deildinni núna, enn er verið að bera leikmennina saman.

Hann getur ekki sigrað leiki einn hérna. Persónulega vel ég Messi sem fótboltamann en það efast enginn um hæfileika Ronaldo, að hann skuli hafa sigrað Bollon D'Or fimm sinnum hefur einhverja þýðingu,” sagði Insigne.

Treyjur merktar Ronaldo hafa náð miklum vinsældum og það tók aðeins sólahring að selja um 520 þúsund skyrtur með nafni hans á bakinu.
Athugasemdir
banner
banner
banner