Taiwo Awoniyi hefur framlengt samningi sínum við Liverpool en hann hefur verið þrjú ár hjá félaginu sem hann hefur þó eytt að mestu leyti á láni hjá Royal Excel Mouscron, NEC Nijmegen og FSV Frankfurt.
Taiwo Awoniyi skrifaði í dag undir nýjan samning en hann eyddi öllu síðasta tímabili á láni hjá Royal Excel Mouscron í efstu deild Belgíu þar sem hann skoraði 10 mörk og lagði upp fjögur.
„Ég er spenntur og mjög glaður. Það eru þrjú ár síðan ég kom til Liverpool. Hingað til hefur þetta verið gott. Síðasta árið var það besta fyrir mig, þetta hefur verið frábært ár hingað til,” sagði Awoniyi.
Leikmaðurinn kom upphaflega til Liverpool frá Imperial fótboltaakademíunni í heimalandi hans, Nígeríu. Líklegt er að leikmaðurinn verði sendur aftur á lán en það á eftir að koma í ljós hvert hann fer.
Athugasemdir