Nú er Pepsi Max-deild kvenna rúmlega hálfnuð og framundan er spennandi seinni umferðin þar sem spennan er mikil bæði á toppi og botni deildarinnar.
Eins og undanfarin ár eru alltaf einhverjir leikmenn úr deildinni sem ekki ná að klára tímabilið vegna háskólanáms erlendis en í ár eru 25 leikmenn á förum, sumir hafa nú þegar spilað sinn síðasta leik í sumar en aðrir ná einum til tveimur leikjum í viðbót.
Eins og undanfarin ár eru alltaf einhverjir leikmenn úr deildinni sem ekki ná að klára tímabilið vegna háskólanáms erlendis en í ár eru 25 leikmenn á förum, sumir hafa nú þegar spilað sinn síðasta leik í sumar en aðrir ná einum til tveimur leikjum í viðbót.
Í fyrra fóru 24 leikmenn út í nám áður en mótið kláraðist en þeim fjölgar um einn í ár. Sumarið þar áður fóru ekki nema 17 leikmenn út í nám.
Ljóst er að Fylkir missir flesta leikmenn út í nám eða sex talsins. Þór/KA missir fimm leikmenn og Keflavík fjóra. ÍBV er eina liðið sem missir engan leikmann út í háskólanám og aðeins einn leikmaður yfirgefur bæði Val og KR.
Hér að neðan er listi yfir þá leikmenn sem eru á leið í háskólanám.
Valur:
Bergdís Fanney Einarsdóttir - (Nær tveimur leikjum í viðbót
KR:
Ásdís Karen Halldórsdóttir - (Nær tveimur leikjum í viðbót
Breiðablik:
Andrea Rán Hauksdóttir - (Nær tveimur leikjum í viðbót
Berglind Baldursdóttir - (Nær tveimur leikjum í viðbót
Stjarnan:
Arna Dís Arnþórsdóttir - (Nær tveimur leikjum í viðbót
Kolbrún Tinna Eyjólfsdóttir - (Nær tveimur leikjum í viðbót
María Sól Jakobsdóttir - (Nær einum leik í viðbót
Keflavík:
Una Margrét Einarsdóttir - (Er farin)
Katrín Hanna Hauksdóttir - (Nær einum leik í viðbót)
Ísabel Jasmín Almarsdóttir - (Nær þremur leikjum í viðbót)
Anita Lind Daníelsdóttir - (Nær fimm leikjum í viðbót)
Þór/KA:
Agnes Birta Stefánsdóttir - (Nær tveimur leikjum í viðbót
Andrea Mist Pálsdóttir - (Nær tveimur leikjum í viðbót
Harpa Jóhannsdóttir - (Nær tveimur leikjum í viðbót
Saga Líf Sigurðardóttir - (Nær tveimur leikjum í viðbót
Margrét Árnadóttir - (Er farin)
Selfoss:
Unnur Dóra Bergsdóttir - (Nær einum leik í viðbót)
Bergrós Ásgeirsdóttir - (Nær tveimur leikjum í viðbót)
Eva lind Elíasdóttir - (Er farin)
HK/Víkingur:
Ástros Silja Luckas (Nær tveimur leikjum í viðbót
Guðrún Gyða (Nær tveimur leikjum í viðbót
ÍBV:
Enginn leikmaður er á leið í nám
Fylkir:
Thelma Lóa Hermannsdóttir (Nær 2-3 leikjum í viðbót)
Kristín Þóra Birgisdóttir (Nær 2-3 leikjum í viðbót)
Lilja Vigdís Davíðsdóttir (Nær 2-3 leikjum í viðbót)
Hulda Hrund Arnarsdóttir (Nær 2-3 leikjum í viðbót)
Rakel Jónsdóttir (Nær 2-3 leikjum í viðbót)
Athugasemdir