Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   fim 18. júlí 2019 09:30
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Alisson, Salah og Firmino fara með Liverpool til Frakklands
Mane, Salah og Firmino fagna ásamt Wijnaldum.
Mane, Salah og Firmino fagna ásamt Wijnaldum.
Mynd: Getty Images
Alisson, Roberto Firmino og Mohamed Salah munu allir koma til liðs við Liverpool áður en félagið heldur til Evian í Frakklandi seinna í mánuðinum.

Þremenningarnir hafa verið í landsliðverkefnum í sumar en koma til liðs við Liverpool tæplega viku fyrir leik liðsins við Manchester City í Samfélagsskildinum. Tólf dögum fyrir leikinn gegn Norwich í deildinni og fimmtán dögum fyrir leikinn gegn Chelsea í Ofurbikarnum.

Sadio Mane spilar á morgun úrslitaleikinn í Afríkukeppninni þegar Senegal mætir Alsír.

Jurgen Klopp, stjóri Liverpool, ætlar að bíða og sjá hvernig Mane kemur úr þeim leik áður en hann tjáir sig frekar um hvenær Mane mætir til baka.
Athugasemdir
banner
banner
banner