Enska úrvalsdeildarfélagið Newcastle United er að ganga frá kaupum á brasilíska sóknarmanninum Joelinton frá Hoffenheim. Samkvæmt Newcastle Chronicle þá er leikmaðurinn í læknisskoðun hjá Newcastle.
Rafael Benitez hætti með Newcastle um mánaðarmótin og ákvað Newcastle að ráða Steve Bruce í stað hans.
Mike Ashley, eigandi Newcastle, hefur verið mikið gagnrýndur fyrir ráðninguna en hann reynir að bæta það upp núna.
Newcastle er að ganga frá kaupum á brasilíska sóknarmanninum Joelinton en hann kemur frá Hoffenheim. Hann er aðeins 22 ára gamall og skoraði 11 mörk í 33 leikjum á síðasta tímabili.
Samkvæmt Newcastle Chronicle er Joelinton í læknisskoðun og verður væntanlega kynntur í dag eða á morgun.
Talið er að Bruce fái 90 milljónir punda til að versla í sumar en Benitez fékk tækifæri til að kaupa Joelinton í janúar en hafnaði því.
Athugasemdir