Hver tekur við af Klopp? - Dani Olmo orðaður við Man Utd - Greenwood í skiptum fyrir Gleison Bremer
   fim 18. júlí 2019 13:00
Brynjar Ingi Erluson
Walter Sabatini: Myndi finna nýjan kærasta handa Wöndu Icardi
Mauro Icardi og eiginkona hans, Wanda Icardi.
Mauro Icardi og eiginkona hans, Wanda Icardi.
Mynd: Getty Images
Walter Sabatini, fyrrum tæknilegur ráðgjafi Inter á Ítalíu, er með lausnina að öllum vandamálum sem koma að Mauro Icardi, framherja félagsins.

Icardi er ekki í miklum metum hjá Inter þessa dagana en hann vill komast burt frá félaginu. Hann tók við fyrirliðabandinu af Andrea Ranocchia sumarið 2015 en var sviptur bandinu í febrúar á þessu ári eftir ummæli sem eiginkona hans og umboðsmaður, Wanda, lét flakka í sjónvarpsþættinum Tiki Taka.

Í kjölfarið spilaði Icardi ekki leik fyrir Inter í 53 daga og er nú unnið að því að selja leikmanninn. Juventus og Napoli eru með augastað á Mauro.

Sabatini var tæknilegur ráðgjafi hjá Inter í tæpt ár frá maí 2017 til mars 2018 en hann er með fullkomna lausn fyrir Mauro.

„Ef Icardi væri leikmaðurinn minn þá myndi ég finna nýjan kærasta hans Wöndu svo það væri hægt að losa hana frá honum því Mauro er frábær drengur og góður faðir," sagði Sabatini við Gazzetta dello sport.
Athugasemdir
banner
banner
banner