Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   lau 18. júlí 2020 21:30
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Einkunnir Arsenal og Man City: Martöð síðast en draumur núna
David Luiz.
David Luiz.
Mynd: Getty Images
Arsenal er komið í úrslitaleik enska bikarsins eftir sigur á Manchester City á Wembley.

Pierre-Emerick Aubameyang skoraði tvennu og fær níu í einkunn frá Sky Sports en hann er ekki maður leiksins. David Luiz fær þá viðurkenningu.

Luiz átti eina verstu innkomu í sögu ensku úrvalsdeildarinnar í 3-0 tapi gegn Man City fyrir mánuði síðan. Í kvöld steig hann varla feilspor og var maður leiksins. Matraðarleikur síðast hjá Luiz, draumaleikur núna.

Arsenal: Martinez (7), Mustafi (8), Luiz (9), Tierney (9), Bellerin (7), Ceballos (8), Xhaka (8), Maitland-Niles (8), Pepe (8), Lacazette (7), Aubameyang (9).

Varamenn: Torreira (N/A), Willock (N/A)

Man City: Ederson (6), Walker (5), Garcia (6), Laporte (6), Mendy (5), Gundogan (6), D Silva (6), De Bruyne (7), Mahrez (5), Jesus (5), Sterling (5)

Varamenn: Rodri (6), Foden (6)

Maður leiksins: David Luiz






Athugasemdir
banner
banner
banner