HK þurfti að sætta sig við 2-0 tap gegn KA í Pepsi Max-deild karla, í dag. Brynjar Björn Gunnarsson, þjálfari HK, var eðlilega svekktur með tapið eftir leik. HK situr í 11. sæti deildarinnar og eiga topplið Vals í næsta leik.
„Svekkjandi 2-0 í baráttuleik og jöfnum leik, svona ef við förum að skoða tölurnar. Það sem telur er að KA menn settu boltann í netið,'' sagði Brynjar Björn.
„Svekkjandi 2-0 í baráttuleik og jöfnum leik, svona ef við förum að skoða tölurnar. Það sem telur er að KA menn settu boltann í netið,'' sagði Brynjar Björn.
Lestu um leikinn: KA 2 - 0 HK
KA menn skoruðu fyrra mark sitt í leiknum þegar að HK höfðu verið að sækja í sig veðrið og náð smá tökum á leiknum - það fannst Brynjari svekkjandi.
„Á þeim tímapunkti vorum við sennilega búnir að vera aðeins sterkari aðilinn í leiknum og ekki búnir að fá neitt fyrir það. Þá er það smá þungt.''
Daníel Hafsteinsson bætti svo við öðru marki KA og þá virtist brekkan einfaldlega verða aðeins of brött fyrir gestina.
„Þá varð erfitt að ná einhverju spili í gang, þar sem við reyndum að spila svolítið eftir aðstæðum. Svo vorum við bara einhvernveginn ekki nógu klókir síðustu 20 mínúturnar að koma boltanum út á kantana og inn í teig, að klára sóknirnar með skotum og svo framvegis,'' sagði Brynjar Björn.
Viðtalið má sjá í heild sinni í spilaranum hér að ofan.
Athugasemdir