Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   sun 18. júlí 2021 15:51
Brynjar Ingi Erluson
CSKA hafnaði tilboði Brentford í Vlasic
Nikola Vlasic fer líklega til Milan
Nikola Vlasic fer líklega til Milan
Mynd: Getty Images
Rússneska félagið CSKA Moskva hafnaði 15 milljón punda tilboði frá Brentford í króatíska sóknartengiliðinn Nikola Vlasic en þetta kemur fram í rússneskum miðlum í dag.

Vlasic hefur komið að 43 mörkum í 81 deildarleik fyrir CSKA frá því hann kom frá Everton.

Frammistaða hans í Rússlandi hefur skilað honum föstu sæti í króatíska landsliðinu. Útlit er fyrir að hann yfirgefi CSKA í sumar.

Milan og Brentford hafa verið í viðræðum við CSKA en rússneska félagið hafnaði 15 milljón punda tilboði Brentford á dögunum.

Vlasic hefur engan áhuga á að spila aftur í ensku úrvalsdeildinni og vill komast til Ítalíu.

CSKA borgaði 15,7 milljónir punda fyrir Vlasic árið 2019.
Athugasemdir
banner
banner
banner