Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   sun 18. júlí 2021 17:20
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Everton að næla í tvo kantmenn
Andros Townsend er á leið til Everton.
Andros Townsend er á leið til Everton.
Mynd: Getty Images
Enska úrvalsdeildarfélagið Everton er að bæta við sig tveimur kantmönnum.

Paul Joyce, blaðamaður The Times, greinir frá því á Twitter að Everton sé að færast nær samningum við þá Demarai Gray og Andros Townsend.

Townsend er þrítugur og hann er samningslaus. Hann lék með Crystal Palace frá 2016 til 2021 en virðist núna á leið til Everton á frjálsri sölu.

Gray er 25 ára gamall og var á mála hjá Leicester frá 2016 til 2021. Í janúar síðastliðnum fór hann til Bayer Leverkusen en hann mun stoppa stutt þar. Hann er á leið til Everton fyrir 1,5 milljónir punda.

Everton hafnaði í tíunda sæti deildarinnar á síðustu leiktíð. Gylfi Þór Sigurðsson er einn af leikmönnum liðsins, en nýr stjóri liðsins er hinn spænski Rafa Benitez.


Athugasemdir
banner