Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   sun 18. júlí 2021 23:30
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Frábær lýsing er magnað mark var skorað í 4. deildinni
Frá Ásvöllum í Hafnarfirði. Þar var markið skorað.
Frá Ásvöllum í Hafnarfirði. Þar var markið skorað.
Mynd: Fótbolti.net - Hulda Margrét
Sindri Hrafn Jónsson skoraði eitt af mörkum sumarsins hér á Íslandi í 4. deildinni á föstudagskvöld.

KÁ fékk Hörð frá Ísafirði í heimsókn á Ásvelli og þar fóru heimamenn með sigur af hólmi, 4-2.

Sindri Hrafn skoraði fjórða mark KÁ í uppbótartímanum en það var svo sannarlega ekki af verri gerðinni.

Hann fékk boltann fyrir utan teig og ákvað bara að negla á markið. Það var ekki slæm ákvörðun því boltinn söng í netinu. „Flottasta mark 4. deildar frá upphafi!" skrifar Máni Mar Steinbjörnsson, leikmaður Hauka, við myndband af markinu á Twitter.

Leikurinn var sýndur á Haukar TV og voru lýsendurnir í ansi góðum gír þegar boltinn endaði í markinu.

Myndband af markinu má sjá hér að neðan.


Athugasemdir
banner
banner