Kovac orðaður við stjórastól Liverpool - Newcastle vill Gibbs-White - Dewsbury-Hall orðaður við Tottenham
Þurfti að róa Pablo eftir leik - „Leikmenn eiga ekki að skipta sér að áhorfendum“
„Ef þetta heldur svona áfram verða bara allir í banni eftir smá stund"
Hefði sætt sig við jafntefli - „Ég held að við höfum reynt 5 eða 6 plön í þessum leik“
Alex Freyr ósáttur: Þetta er bara sorglegt
Eysteinn á von á geggjuðum leik - „Jölli er alltaf Jölli í Portúgal"
Arnór Smára: Hafði persónulega mikla þýðingu fyrir mig
Draumadráttur Jökuls: Augnablik á stóran hluta af mínu hjarta og mun alltaf gera
Kjartan Henry: Hallgrímur sá ekki til sólar eftir það
Var vítaspyrnudómurinn í Árbæ rangur?
Lék sinn fyrsta leik í efstu deild og vildi víti - „Fann fyrir snertingu og lét mig detta"
Líður eins og Valsarar hafi tapað leiknum - „Hafði aldrei trú á því að hann væri að fara skora"
Arnar Grétars: Gerði mikið fyrir okkur að vera með frábæran markmann
Svekktur yfir því að vinna ekki Val - „Mjög dapurt víti, svo við tölum hreint út“
Jón Þór: Bíð jafn spenntur og þú
Viktor Jóns: Get skorað mörk hvar sem er
Ómar Ingi: Eðlilega verður róðurinn þyngri
Siggi Höskulds: Áttum að skora miklu fleiri mörk
Mikael: Ef menn vilja vera áfram í KFA þurfa menn að horfa á þennan leik
Eyþór: Talað um báða titlana frá fyrsta samtali
Marc McAusland: Lífið er gott í ÍR
banner
   sun 18. júlí 2021 21:41
Magnús Þór Jónsson
Rúnar: Stig var fínt í dag
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Rúnar Kristinsson þjálfari KR kom í viðtal eftir 1-1 jafnteflið við Blika í kvöld, hvernig horfði leikurinn við honum, stig unnið eða tvö töpuð?

„Það er allt í lagi að fá eitt stig hér í kvöld en ef eitthvað lið átti að vinna hér í kvöld voru það við fannst mér. Við komumst yfir og ég var ósáttur við markið sem við fáum á okkur sem er uppúr okkar horni þar sem þeir sækja svo hratt á okkur, er ósáttur við það."

Lestu um leikinn: KR 1 -  1 Breiðablik

KR hafði haft tök á leiknum í fyrri hálfleik og þar til þeir komust yfir í 1-0 stöðu. Féllu þá til baka, var það ósjálfrátt eða ákveðið?

„Við færðum okkur aftar en við erum góðir í því og við höfðum ekki áhyggjur og leið ágætlega með þá. Við vorum farnir að ræða það á bekknum að við gætum ekki dottið svona mikið niður þegar þeir jafna en það var ekki komin mikil hætta."

Með sigri hefði KR farið upp í 2. sætið og nálgast Val sem tapaði á Skaganum í gær. Höfðu þau úrslit áhrif á ykkur?

Nei, nei. Við erum sallarólegir, það er mikið eftir af þessu móti og stig er fínt í dag. Við vorum að spila við eitt besta lið á landinu. Við verðum að bera virðingu fyrir þeim og stigatöflunni þó við vildum auðvitað vera hærra."

Nánar er rætt við Rúnar í viðtalinu sem fylgir fréttinni.
Athugasemdir
banner
banner
banner