Þrjú ensk úrvalsdeildarfélög eru talin hafa áhuga á Reiss Nelson, leikmanni Arsenal, sem fær takmarkað að spila.
Nelson fékk aðeins að spila tvo úrvalsdeildarleiki fyrir Arsenal í vetur og er talinn horfa annað.
Leikmaðurinn á aðeins 12 mánuði eftir af samningnum á Emirates og gæti Arsenal því neyðst til að selja.
Brentford, Crystal Palace og Brighton eru talin áhugasöm en Brentford er nýliði í efstu deild í ár.
Vængmaðurinn spilaði vel fyrir Hoffenheim á láni 2018/2019 og var þá undir stjórn Julian Nagelsmann sem er í dag stjóri Bayern Munchen.
Athugasemdir