Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   mán 18. júlí 2022 06:00
Brynjar Ingi Erluson
Barcelona kynnti Lewandowski í Miami
Mynd: Barcelona
Robert Lewandowski er nú formlega genginn til liðs við Barcelona og var hann kynntur á samfélagsmiðlum félagsins í nótt.

Pólski framherjinn, sem er 33 ára gamall, kemur til félagsins frá Bayern München fyrir 50 milljónir evra.

Barcelona staðfesti samkomulag við Bayern á laugardag og flaug leikmaðurinn til Bandaríkjanna til að gangast undir læknisskoðun og skrifa í kjölfarið undir fjögurra ára samning við félagið í gær.

Hann var svo kynntur á samfélagsmiðlum í nótt en þar má sjá myndband af honum á ströndum Miami.

Lewandowski hefur verið valinn besti leikmaður heims af FIFA tvö ár í röð.

Framherjinn skoraði 344 mörk og lagði upp 75 mörk í 375 leikjum með Bayern München. Liðið vann deildina öll árin sem hann var hjá Bayern, eða átta sinnum, auk þess sem hann vann Meistaradeild Evrópu einu sinni.


Athugasemdir
banner
banner