Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   mán 18. júlí 2022 10:01
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Rotherham
Glódís um samanburðinn við Van Dijk: Hann er frábær leikmaður
Icelandair
Glódís Perla Viggósdóttir.
Glódís Perla Viggósdóttir.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Glódís Perla Viggósdóttir, varafyrirliði Íslands, hefur átt mjög gott Evrópumót til þessa.

Hún er algjör lykilmaður í liði Íslands, er gríðarlega mikilvæg.

Á dögunum var talað um Glódísi í EM Innkastinu og þá var minnst á að hennar leikstíll minnti á Virgil van Dijk, miðvörð Liverpool.

„Ég ætla að stela líkingu kollega okkar, Óskars Ófeigs, um Glódísi. Hann sagði bara að þetta væri eins og að horfa á (Virgil) Van Dijk," sagði Sæbjörn Steinke.

Glódís var spurð út í þennan samanburð á fréttamannafundi í gær.

„Ég var ekki búin að sjá þetta," sagði Glódís. „Mér finnst hann frábær leikmaður og ætla bara að segja að það sé jákvætt."

Glódís verður í eldlínunni í dag þegar Ísland mætir Frakklandi í lokaleik sínum í riðlakeppninni á Evrópumótinu.
Athugasemdir
banner
banner