Gríntilboð í Ederson - Trafford gæti verið á heimleið - Simons í ensku úrvalsdeildina?
   fös 18. júlí 2025 10:53
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Brynjar Ingi á leið til Greuther Fürth
Á leið til Þýskalands.
Á leið til Þýskalands.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Brynjar Ingi Bjarnason er á leið frá norska félaginu HamKam til þýska félagsins Greuther Fürth. Frá þessu er greint á norska miðlinum TV2 í morgun. Þýska félagið kaupir íslenska miðvörðinn sem er samningsbundinn HamKam út árið.

Brynjar Ingi er 25 ára KA maður sem hefur verið erlendis í atvinnumennsku frá sumrinu 2021. Hann fór fyrst til Lecce, næst til Vålerenga og hefur verið hjá HamKam í rúm tvö ár. Hann hefur verið fastamaður á tímabilinu, spilað nánast allar mínútur frá því í janúar.

Brynjar á að baki 17 A-landsleiki, spilaði 17. leikinn gegn Hollandi fyrir 13 mánuðum síðan.

Greuther Fürth endaði í 13. sæti þýsku B-deildarinnar á síðasta tímabili.


Athugasemdir
banner
banner