Gríntilboð í Ederson - Trafford gæti verið á heimleið - Simons í ensku úrvalsdeildina?
   fös 18. júlí 2025 18:00
Elvar Geir Magnússon
Grealish á förum og West Ham vill fá hann
Mynd: EPA
West Ham hefur áhuga á að fá Jack Grealish frá Manchester City en hann þyrfti að taka á sig verulega launalækkun til að það yrði að veruleika.

Grealish, sem er þrítugur, hefur ekki verið í stóru hlutverki hjá Pep Guardiola undanfarna mánuði og er sagður tilbúinn að skoða möguleika á því að fara til West Ham.

Hann er að æfa einn um þessar mundir og City býst við því að hann sé á förum frá félaginu.

Tottenham er ekki lengur með Grealish á blaði en Everton fylgist grannt með gangi mála.

Grealish hefur verið hjá City síðan hann var keyptur á metfé frá Aston Villa sumarið 2021.
Athugasemdir
banner