Harry Kane var að skora fyrir Tottenham gegn Fulham.
Enski landsliðsfyrirliðinn kom Tottenham í 3-1.
Það að Kane sé að skora er ekki eitt og sér mjög fréttnæmt, en það að hann skuli gera það í ágúst er það.
Kane hefur nefnilega aldrei skorað í keppnisleik í ágúst fyrr en nú. Honum tókst það í 15. tilraun.
Harry Kane í ágúst fyrir leikinn í dag:
14 leikir
988 mínútur
46 skot
0 mörk
Bölvuninni er loksins aflétt!
Athugasemdir