lau 18. ágúst 2018 11:30
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Henry inn í myndinni hjá Bordeaux
Henry stefnir á að koma sér í stjórastarf.
Henry stefnir á að koma sér í stjórastarf.
Mynd: Getty Images
Arsenal goðsögnin Thierry Henry er inn í myndinni hjá franska félaginu Bordeaux sem er í þjálfaraleit.

Gus Poyet var rekinn frá Bordeaux í gær eftir að hann lét eigendur félagsins heyra það. Einn af leikmönnum Bordeaux var seldur án þess að Poyet hafði vitneskju um það.

Henry, sem gerði garðinn frægan með Arsenal og spilaði einnig með Mónakó, Juventus, Barcelona og New York Red Bulls, hefur starfað í þjálfaraliði belgíska landsliðsins frá 2016. Belgía endaði í þriðja sæti á HM í Rússlandi í sumar.

Henry vill fara í stjórastarf og var hann orðaður við Aston Villa á dögunum.

Bordeaux er núna sagður líklegur kostur, en franska úrvalsdeildin er nýhafin og því vill Bordeaux væntanlega ganga frá sínum málum sem allra fyrst. Henry hefur spurst fyrir um starfið.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner