Það er heldur betur nóg um að vera í íslenska boltanum í dag en það er meðal annars einn leikur á dagskrá í Pepsi-deild karla og fjórir leikir í Inkasso-deild karla.
ÍBV fær Keflavík í heimsókn á Hásteinsvöll í Pepsi-deild karla en ÍBV er í áttunda sætinu og getur jafnað KA að stigum en Keflavík er á botninum með 4 stig og þarf kraftaverk til þess að halda liðinu uppi.
Það er þá mikil spenna í Inkasso-deild karla en Selfoss og Haukar mætast klukkan 14:00 og á sama tíma mætast ÍR og ÍA í neðra Breiðholti. Klukkan 16:00 mætast HK og Þór en Leiknismenn gera sér ferð til Grenivíkur og mæta Magna.
Hægt er að sjá alla leiki dagsins hér fyrir neðan.
Leikir dagsins:
Pepsi-deild karla
16:00 ÍBV-Keflavík (Hásteinsvöllur)
Inkasso deildin - 1. deild karla
14:00 Selfoss-Haukar (JÁVERK-völlurinn)
14:00 ÍR-ÍA (Hertz völlurinn)
16:00 HK-Þór (Kórinn)
16:00 Magni-Leiknir R. (Grenivíkurvöllur)
2. deild karla
14:00 Þróttur V.-Leiknir F. (Vogabæjarvöllur)
14:00 Grótta-Höttur (Vivaldivöllurinn)
14:00 Fjarðabyggð-Afturelding (Eskjuvöllur)
14:00 Vestri-Víðir (Olísvöllurinn)
3. deild karla
14:00 Ægir-Sindri (Þorlákshafnarvöllur)
14:00 KFG-Dalvík/Reynir (Samsung völlurinn)
14:00 Einherji-KH (Vopnafjarðarvöllur)
14:00 KF-Vængir Júpiters (Ólafsfjarðarvöllur)
16:00 KV-Augnablik (KR-völlur)
Inkasso deild kvenna
13:00 Sindri-Þróttur R. (Sindravellir)
14:00 Afturelding/Fram-Fjölnir (Varmárvöllur)
14:00 Hamrarnir-ÍR (Boginn)
2. deild kvenna
16:00 Völsungur-Hvíti riddarinn (Húsavíkurvöllur)
4. deild karla - A-riðill
11:00 KFR-Stál-úlfur (Helluvöllur)
4. deild karla - C-riðill
14:00 GG-KFS (Grindavíkurvöllur)
4. deild karla - D-riðill
16:00 ÍH-Kormákur/Hvöt (Ásvellir)
Stöðutaflan
L | U | J | T | ms: | mf: | mun | Stig | ||
---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 |
Athugasemdir