Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
Jökull: Þeir voru frábærir - Við áttum kannski ekkert skilið úr þessum leik
Hetja HK kíkir ekkert niður í bæ: Ekkert mikið að gera þar miðað við í London
Hrannar Bogi eftir hetjulega frammistöðu Augnabliks: Við nálgumst leiki alltaf alveg eins
Fékk afmælisgjöf fyrir leikinn: Ég fékk Þróttaratrefil og nokkrar Stellur
Nýir tímar í Laugardalnum - „Finnst bara tilvalið að með því fylgi nýtt merki“
Haukur Páll: Ekki spurning um að koma mönnum fyrir
Heimir Guðjóns: Hefði verið gult spjald í fyrra
Gylfi Þór: Skrítið að spila gegn liði sem ég var hjá í 10 ár
Úlli: Fékk held ég nóg af liðsfélögum sínum
Bjarni Jó: Nýttum færin okkar illa
Gunnar Magnús: Alsæll þrátt fyrir að það hafi endað í jafntefli
Ólafur Kristjáns: Ekki hægt að gera neitt við því núna
Kristján Guðmunds: Munum rífa okkur í gang eftir þetta
John Andrews: Gæti ekki verið stoltari
Nik: Vigdís hefur staðið sig vel sem framherji
Glenn: Komum hingað með því hugarfari að vinna leikinn
Vigdís Lilja: Ætla að spila frammi í sumar og skora eins mikið og ég get
Sáttur Arnar Gunnlaugs: Erum að senda ágæt skilaboð til liðanna í deildinni
Höskuldur brattur eftir leik: Maður verður að jafna sig hratt á þessu
Elskar stóru leikina - „Vona að fólk viti að þeir kitla mig.“
   sun 18. ágúst 2019 18:49
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Óli Stefán: Skulum ekki vera með neinn dónaskap við þá
Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson
„Við spiluðum flottan leik að mörgu leyti í dag. Við erum pínulítið sjálfum okkur verstir. Auðvitað er þetta hundfúlt, en að sama skapi verðum við að virða stigið," sagði Óli Stefán Flóventsson, þjálfari KA, eftir 1-1 jafntefli gegn ÍBV í Pepsi Max-deildinni í dag.

Lestu um leikinn: ÍBV 1 -  1 KA

Halldór Páll í marki ÍBV varði vítaspyrnu frá Hallgrími Mar Steingrímssyni á síðustu stundu í uppbótartíma seinni hálfleiks. Hann hljóp inn í klefa eftir leikinn og brotnaði niður að eigin sögn.

„Hann vill það besta fyrir liðið sitt. Hann tekur þessa ábyrgð að fara á vítapunktinn. Menn geta klikkað. Við stöndum í þessum saman, hann er ekki í þessu einn. Hann hefur staðið sig frábærlega í sumar og skilað fullt af stigum. Núna erum við til staðar fyrir hann," sagði Óli.

Þetta var fyrsta stig ÍBV síðan 2. júní, en liðið er á botninum með aðeins sex stig.

„Menn verða að sýna ÍBV virðingu, þetta er ÍBV. Þeir eru á sínum heimavelli þar sem þeir hafa alltaf verið sterkir. Þeir hafa verið að tapa mörgum af þessum leikjum í hörkuleikjum. Við skulum ekki vera með neinn dónaskap við þá. Við komum inn í þennan leik af virðingu og tökum með okkur stigið."

KA er í níunda sæti með 20 stig. Liðið er enn í harðri fallbaráttu.

„Þetta er staðan. Við tókum eitt stig og prílum einu stigi nær okkar takmarki sem er að halda okkur í þessari deild, fyrst og fremst. Það var margt jákvætt í okkar leik og við verðum að taka það með okkur."

VIðtalið er hér að ofan.
Athugasemdir
banner
banner
banner