Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
Jökull: Þeir voru frábærir - Við áttum kannski ekkert skilið úr þessum leik
Hetja HK kíkir ekkert niður í bæ: Ekkert mikið að gera þar miðað við í London
Hrannar Bogi eftir hetjulega frammistöðu Augnabliks: Við nálgumst leiki alltaf alveg eins
Fékk afmælisgjöf fyrir leikinn: Ég fékk Þróttaratrefil og nokkrar Stellur
Nýir tímar í Laugardalnum - „Finnst bara tilvalið að með því fylgi nýtt merki“
Haukur Páll: Ekki spurning um að koma mönnum fyrir
Heimir Guðjóns: Hefði verið gult spjald í fyrra
Gylfi Þór: Skrítið að spila gegn liði sem ég var hjá í 10 ár
Úlli: Fékk held ég nóg af liðsfélögum sínum
Bjarni Jó: Nýttum færin okkar illa
Gunnar Magnús: Alsæll þrátt fyrir að það hafi endað í jafntefli
Ólafur Kristjáns: Ekki hægt að gera neitt við því núna
Kristján Guðmunds: Munum rífa okkur í gang eftir þetta
John Andrews: Gæti ekki verið stoltari
Nik: Vigdís hefur staðið sig vel sem framherji
Glenn: Komum hingað með því hugarfari að vinna leikinn
Vigdís Lilja: Ætla að spila frammi í sumar og skora eins mikið og ég get
Sáttur Arnar Gunnlaugs: Erum að senda ágæt skilaboð til liðanna í deildinni
Höskuldur brattur eftir leik: Maður verður að jafna sig hratt á þessu
Elskar stóru leikina - „Vona að fólk viti að þeir kitla mig.“
   sun 18. ágúst 2019 20:01
Sverrir Örn Einarsson
Túfa: Verð að treysta Þorvaldi
Túfa, þjálfari Grindavíkur.
Túfa, þjálfari Grindavíkur.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Grindavík gerði enn eitt jafnteflið í Pepsi Max deildinni í sumar þegar liðið tók á móti HK á Mustadvellinum í Grindavík í dag.

Stigið gerir lítið fyrir Grindavík sem situr enn í fallsæti og ljóst að verkefnið að bjarga liðinu frá falli verður ærið fyrir Grindvíkinga.

Lestu um leikinn: Grindavík 1 -  1 HK

„Ég er sáttur við karakter minna manna. Hvernig við vorum að berjast fyrir þessu og sýna mikin karakter að jafnvel þótt við værum snemma undir í rosalega mikilvægum leik og að vera undir meirihluta leiksins og samt sýna karakter og jafna leikinn á endanum," sagði Tufa þjálfari Grindavíkur aðspurður hvort hann væri sáttur við stigið.

Vítaspyrna var dæmd á Grindavík um miðbik fyrri hálfleiks. Hvernig horfði sá dómur við Tufa?

„Ég veit það ekki. Á þessum tímapunkti er innkast hátt upp á velliog allt í einu fáum við dæmda á okkur vítaspyrnu þegar ég er að tala við aðstoðarmann. Ég er ekki búinn að sjá þetta betur en hann var fljótur að dæma og ekkert mikið að hugsa þannig að ég verð að treysta Þorvaldi.“

Nokkrir leikmenn voru fjarverandi hjá Grindavík í dag vegna meiðsla. Hver er staðan á þeim?

„Tufa verður næstu tvær vikur off þannig að þetta eru svona alvarleg meiðsli hjá honum. Alexander Veigar er á leiðinni til baka og ég á von á því að hann komi inn í vikunni.“

Sagði Tufa en allt viðtalið má sjá hér að ofan.

Athugasemdir
banner
banner
banner
banner