Man City ræðir um möguleg kaup á Ait-Nouri - Adarabioyo eftirsóttur - Newcastle vill Sesko
   sun 18. ágúst 2019 13:00
Brynjar Ingi Erluson
Zlatan skoraði tvö fyrir LA Galaxy
Zlatan heldur áfram að raða inn mörkum í MLS-deildinni
Zlatan heldur áfram að raða inn mörkum í MLS-deildinni
Mynd: Getty Images
Sænski framherjinn Zlatan Ibrahimovic var öflugur í 2-2 jafntefli Los Angeles Galaxy gegn Seattle Sounders í MLS-deildinni í nótt en hann gerði bæði mörk LA Galaxy.

Zlatan gekk til liðs við Galaxy fyrir síðasta tímabil og gerði þá 22 mörk yfir allt tímabilið en hann er nú þegar kominn með 20 mörk á þessu tímabili.

Hann gerði bæði mörk liðsins í 2-2 jafntefli gegn Seattle Sounders í nótt en fyrra markið gerði hann undir lok fyrri hálfleiks með góðum skalla er hann jafnaði stöðuna, 1-1. Þá kom hann liðinu yfir með marki úr vítaspyrnu í þeim síðari.

Jorgen Skelvijk varð fyrir því óláni að koma knettinum svo í eigið net undir lok leiks og lokatölur því 2-2. Galaxy er í fínum málum fyrir úrslitakeppnina en liðið er í 3. sæti vesturdeildarinnar með 41 stig, stigi á eftir Minnesota United en heilum 17 stigum á eftir toppliði Los Angeles FC.

Úrslitakeppnin hefst í október en sjö lið fara úr vesturdeildinni og þá fara einnig sjö lið úr austurdeildinni. Galaxy rétt missti af sæti í úrslitakeppninni á síðustu leiktíð en það munaði aðeins stigi á þeim og Real Salt Lake City.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner