Malen, Maguire, Rashford, Greenwood, Yoro, Eriksen og fleiri góðir í slúðri dagsins
   þri 18. september 2018 14:00
Magnús Már Einarsson
Mætast aftur 16 árum síðar í Meistaradeild - Sömu þjálfarar
Fatih Terim þjálfari Galatasaray.
Fatih Terim þjálfari Galatasaray.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Leikur tyrkenska félagsins Galatasaray og rússneska félagsins Lokomotiv Moskvu er kannski ekki sá leikur sem fær mesta athygli fyrir kvöldið í Meistaradeildinni en ein tölfræði er þó virkilega áhugaverð í tengslum við þann leik.

16 ár eru liðin síðan að þessi lið áttust síðast við en þá þjálfaði Fatih Terim og Yuri Semin liðin.

Þeir félagar þjálfa einnig liðin í kvöld! Terim hefur fjórum sinnum á ferlinum tekið við Galatasaray og það sama á við um Semin hjá Lokomotiv.

Þjálfaraferill Terim hjá Galatasaray
1996-2000
2002-2004
2011-2013
2017-

Þjálfaraferill Semin hjá Lokomotiv
1986-1990
1992-2005
2009-2010
2016-
Athugasemdir
banner
banner