James Milner skoraði annað mark Liverpool þegar liðið vann Paris Saint-Germain í Meistaradeildinni í kvöld. Milner fór á vítapunktinn og var öryggið uppmálað.
Milner var í skýjunum þegar fréttamenn náðu af honum tali eftir leikinn.
„Þetta er fullkomin byrjun fyrir okkur. Vonandi getum við byggt ofan á þetta," sagði Milner.
„Það hefur verið mjög mikil vonbrigði að vinna ekki. Þeir sköpuðu sér lítið á meðan við sköpuðum mikið," sagði Milner. Liverpool komst í 2-0 en PSG jafnaði í 2-2. Roberto Firmino kom inn á sem varamaður og hann skoraði sigurmarkið í uppbótartíma.
„Ég gæti verið hérna í allt kvöld að segja jákvæða hluti um Bobby. Að koma af bekknum eftir meiðslin sem hann hlaut um helgina er í rauninni ótrúlegt."
Athugasemdir