Mark dæmt af Liverpool
Liverpool sigraði Paris Saint-Germain þegar liðin mættust í riðlakeppni Meistaradeildarinnar í kvöld.
Roberto Firmino skoraði sigurmark Liverpool í uppbótartíma eftir að hafa komið inn á sem varamaður. Firmino byrjaði á bekknum þar sem hann varð fyrir slæmu augnapoti í leik gegn Tottenham um síðastliðna helgi.
Sigurinn hefði getað verið kominn í hús fyrir Liverpool en mark var dæmt af Liverpool í stöðunni 2-1, það var réttilega dæmt af.
Mohamed Salah skoraði þá en í aðdraganda marksins fór Daniel Sturridge á fullum hraða með takkana í viðkvæmt svæði hjá Alphonse Areola, markverði PSG.
Smelltu hér til að sjá atvikið.
Markið virtist í fyrstu ætla að standa en eftir að Cuneyt Cakir, dómari leiksins, ráðfærði sig við sprotadómara sinn þá dæmdi hann markið af og eins og áður segir, réttilega.
I hope Areola wasn’t planning on having any kids…
— Corey Andress (@EACoreySA) September 18, 2018
Athugasemdir