Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fim 18. október 2018 11:45
Fótbolti.net
Lokahóf hjá Val, KA, Víkingi, HK, Leikni og KFG
Patrick Pedersen var valinn bestur hjá Íslandsmeisturum Vals.
Patrick Pedersen var valinn bestur hjá Íslandsmeisturum Vals.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Thelma Björk var best hjá meistaraflokki kvenna hjá Val.
Thelma Björk var best hjá meistaraflokki kvenna hjá Val.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Callum Williams var valinn bestur hjá KA.
Callum Williams var valinn bestur hjá KA.
Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson
Davíð Örn Atlason var bestur Víkinga.
Davíð Örn Atlason var bestur Víkinga.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Björk Björnsdóttir var valin best hjá kvennaliði HK/Víkings.
Björk Björnsdóttir var valin best hjá kvennaliði HK/Víkings.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Ólafur Örn Eyjólfsson var valinn bestur hjá HK sem komst upp í Pepsi-deildina.
Ólafur Örn Eyjólfsson var valinn bestur hjá HK sem komst upp í Pepsi-deildina.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Sólon Breki Leifsson var bestur hjá Leiknismönnum.
Sólon Breki Leifsson var bestur hjá Leiknismönnum.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Jóhann Ólafur Jóhannsson varð markakóngur í 3. deild og valinn besti leikmaður KFG en liðið komst upp.
Jóhann Ólafur Jóhannsson varð markakóngur í 3. deild og valinn besti leikmaður KFG en liðið komst upp.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Fótbolti.net heldur áfram að greina frá niðurstöðum úr lokahófum félaga á Íslandsmótinu.

Íslandsmeistarar Vals í karlaflokki völdu markakónginn Patrick Pedersen bestan, enda var hann valinn besti leikmaður mótsins af Fótbolta.net. Vitor Vieira Thomas var valinn efnilegastur þó hann hafi ekki fengið leik í Pepsi-deildinni í sumar.

Hjá meistaraflokki kvenna hjá Val var Thelma Björk Einarsdóttir valin best og Hlín Eiríksdóttir efnilegust.

Á lokahófi KA sem haldið var í veislusal Greifans var Callum Williams valinn bestur en Daníel Hafsteinnssson efnilegastur. Bjarni Mark Antonsson var leikmaður ársins hjá Schiöthurum, stuðningsmönnum KA.

Davíð Örn Atlason var valinn besti leikmaður sumarsins hjá Víkingi Reykjavík og Örvar Eggertsson var valinn efnilegastur. Að mati leikmanna meistaraflokks karla var Andreas Larsen markvörður besti leikmaður liðsins.

Hjá meistaraflokki kvenna HK/Víkings var Björk Björnsdóttir valin besti leikmaðurinn og Karolína Jack var valin efnilegasti leikmaður meistaraflokks. Tinna Óðinsdóttir, hlaut Lárubikarinn, en hún var valin af leikmönnum sem besti leikmaðurinn utan sem innan vallar.

HK-ingar komust upp í Pepsi-deild karla. Ólafur Örn Eyjólfsson var valinn bestur á lokahófi þeirra en Valgeir Valgeirsson efnilegastur.

Hjá Leikni í Breiðholti var sóknarmaðurinn Sólon Breki Leifsson valinn besti leikmaður tímabilsins. Vuk Oskar Dimitrijevic var valinn efnilegastur.

KFG úr Garðabæ komst upp úr 3. deildinni í sumar og var því að sjálfsögðu fagnað. Jóhann Ólafur Jóhannsson var valinn bestur á lokahófi sem haldið var 12. október.

Vinsamlegast sendið tölvupóst á [email protected] ef þið hafið upplýsingar um verðlaunahafa á lokahófi hjá einhverju félagi.

Pepsi-deild karla

Valur:
Bestur: Patrick Pedersen
Efnilegastur: Vitor Vieira Thomas

FH:
Bestur: Guðmundur Kristjánsson
Efnilegastur: Jónatan Ingi Jónsson

ÍBV:
Bestur: David Atkinson
Efnilegastur: Sigurður Arnar Magnússon

KA:
Bestur: Callum Williams
Efnilegastur: Daníel Hafsteinsson

Fylkir:
Bestur: Ólafur Ingi Skúlason
Efnilegastur: Aron Snær Friðriksson

Víkingur R.:
Bestur: Davíð Örn Atlason
Efnilegastur: Örvar Eggertsson

Grindavík:
Bestur: Sam Hewson
Efnilegastur: Sigurjón Rúnarsson

Fjölnir:
Bestur: Almarr Ormarsson
Efnilegastur: Valgeir Lunddal Friðriksson

Pepsi-deild kvenna

Valur:
Best: Thelma Björk Einarsdóttir
Efnilegust: Hlín Eiríksdóttir

ÍBV:
Best: Cloe Lacasse
Efnilegust: Clara Sigurðardóttir

FH:
Best: Jasmín Erla Ingadóttir
Efnilegust: Diljá Ýr Zomers

Grindavík
Best: Rio Hardy
Efnilegust: María Sól Jakobsdóttir

Selfoss:
Best: Allyson Paige Haran
Efnilegust: Barbára Sól Gísladóttir

HK/Víkingur:
Best: Björk Björnsdóttir
Efnilegust: Karolína Jack

Inkasso-deild karla

ÍA:
Bestur: Arnar Már Guðjónsson
Efnilegastur: Stefán Teitur Þórðarson

HK:
Bestur: Ólafur Örn Eyjólfsson
Efnilegastur: Valgeir Valgeirsson

Þróttur R.:
Bestur: Viktor Jónsson
Efnilegastur: Baldur Hannes Stefánsson

Leiknir R.:
Bestur: Sólon Breki Leifsson
Efnilegastur: Vuk Oskar Dimitrijevic

Fram:
Bestur: Guðmundur Magnússon
Efnilegastur: Már Ægisson

Haukar:
Bestur: Arnar Aðalgeirsson
Efnilegastur: Ísak Jónsson

Njarðvík:
Bestur: Magnús Þór Magnússon
Efnilegastur: Krystian Wiktorowicz

Magni:
Bestur: Bjarni Aðalsteinsson
Efnilegastur: Bjarni Aðalsteinsson

Víkingur Ó.:
Bestur: Emmanuel Eli Keke
Efnilegastur: Bjartur Bjarmi Barkarson

Selfoss:
Bestur og efnilegastur: Guðmundur Axel Hilmarsson

Inkasso-deild kvenna

Afturelding/Fram:
Best: Eva Rut Ásþórsdóttir
Efnilegust: Cecilía Rán Rúnarsdóttir

Haukar:
Best: Sunna Líf Þorbjörnsdóttir
Efnilegust: Þórdís Elva Ágústsdóttir

ÍA:
Best: Unnur Ýr Haraldsdóttir
Efnilegust: Bergdís Fanney Einarsdóttir

Þróttur R.:
Best: Gabriela Maria Mencotti
Efnilegust: Andrea Rut Bjarnadóttir

Fylkir:
Best: Berglind Rós Ágústsdóttir
Efnilegust: Bryndís Arna Níelsdóttir

2. deild karla:

Afturelding:
Bestur: Andri Freyr Jónasson

Fjarðabyggð:
Bestur: Milos Peric
Efnilegastur: Nikola Kristinn Stojanovic

Grótta:
Bestur: Óliver Dagur Thorlacius
Efnilegastur: Hákon Rafn Valdimarsson

Víðir Garði:
Bestur: Brynjar Atli Bragason
Efnilegastur: Brynjar Atli Bragason

Völsungur:
Bestur: Aron Dagur Birnuson
Efnilegastur: Ólafur Jóhann Steingrímsson

Þróttur Vogum:
Bestur: Jordan Tyler
Efnilegastur: Sverrir Bartolozzi

2. deild kvenna:

Fjarðabyggð/Höttur/Leiknir F.
Best: Valdís Alla Sigurþórsdóttir
Efnilegust: Jóhanna Lind Stefánsdóttir

Grótta:
Best: Sigrún Ösp Aðalgeirsdóttir
Efnilegust: Anja Ísis Brown

Völsungur:
Best: Dagbjört Ingvarsdóttir
Efnilegust: Hulda Ösp Ágústsdóttir

3. deild karla:

KFG:
Bestur: Jóhann Ólafur Jóhannsson
Efnilegastur: Steinn Hlífarson

Dalvík/Reynir:
Bestur: Kelvin Sarkorh
Efnilegastur: Sveinn Margeir Hauksson

KH:
Bestur: Ingólfur Sigurðsson
Efnilegastur: Andi Morina

4. deild karla:

Björninn:
Bestur: Hreiðar Henning Guðmundsson

Hamar:
Bestur: Matthías Ásgeir Ramos Rocha
Efnilegastur: Sigurður Ísak Ævarsson

Hvíti Riddarinn:
Bestur: Jóhann Andri Kristjánsson
Athugasemdir
banner
banner