Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   fim 18. október 2018 22:20
Brynjar Ingi Erluson
Markahæstur í Seríu A: Ronaldo besti leikmaður allra tíma
Cristiano Ronaldo er einn besti leikmaður heims
Cristiano Ronaldo er einn besti leikmaður heims
Mynd: Getty Images
Krysztof Piatek, framherji Genoa í Seríu A á Ítalíu, segir að Cristiano Ronaldo sé besti leikmaður allra tíma.

Piatek er 23 ára gamall framherji sem kom til Genoa í sumar frá Cracovia í Póllandi. Hann skoraði 21 mark á síðasta tímabili og heldur áfram að gera góða hluti þetta tímabilið.

Hann er markahæstur í Seríu A með 9 mörk og þá skoraði hann fjögur mörk í bikarnum fyrir Genoa á dögunum. Hans menn mæta Juventus um helgina en hann talar afar vel um Cristiano Ronaldo.

Ronaldo kom til Juventus frá Real Madrid í sumar og er þegar farinn að sýna hæfileika sína á Ítalíu.

„Cristiano Ronaldo er besti leikmaður heims í dag og að mínu mati er hann besti leikmaður allra tíma," sagði Piatek.

Mörg félög hafa áhuga á því að fá Piatek en Juventus er einmitt eitt þeirra.
Athugasemdir
banner
banner
banner