Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
banner
   fim 18. október 2018 18:00
Elvar Geir Magnússon
Shaw eftir að hann skrifaði undir: Er ungur og get enn bætt mig
Shaw er 23 ára.
Shaw er 23 ára.
Mynd: Getty Images
Í dag var greint frá því að Luke Shaw hefði gert nýjan samning við Manchester United.

Félagið staðfesti þetta svo en samningurinn er til júní 2023, með klásúlu um ár til viðbótar.

„Þetta hafa verið viðburðarík ár síðan ég kom til Manchester United og þau hafa liðið mjög hratt. Ég er mjög stoltur af því að hafa gert nýjan samning og að ég verði áfram hjá þessu frábæra félagi," segir Shaw.

„Ég vil þakka öllum sem hafa staðið með mér og sýnt mér stuðning. Ég vil þakka þjálfarateyminu, liðsfélögunum og stuðningsmönnunum."

„Ég vil láta alla vita af því að ég mun gefa allt í að borga til baka og hjálpa til við að ná velgengni á næstu árum. Ég er enn ungur og mun læra mikið í viðbót. Ég get ekki beðið eftir því að halda áfram að þróast undir Jose Mourinho," segir Shaw.

Gengið hefur á ýmsu í samskiptum Shaw við Mourinho en portúgalski stjórinn fór fögrum orðum um leikmanninn eftir undirskriftina.

„Luke hefur lagt mikið á sig og hefur alltaf haldið í trúna á sjálfan sig. Hann er að taka framförum og hlýtur að vera mjög stoltur af sjálfum sér. Ég er hæstánægður með að við höldum svona ungum engum leikmanni sem á bjarta framtíð," segir Mourinho.
Stöðutaflan England Premier league - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Arsenal 33 23 5 5 77 26 +51 74
2 Liverpool 33 22 8 3 75 32 +43 74
3 Man City 32 22 7 3 76 32 +44 73
4 Aston Villa 34 20 6 8 71 50 +21 66
5 Tottenham 32 18 6 8 65 49 +16 60
6 Newcastle 32 15 5 12 69 52 +17 50
7 Man Utd 32 15 5 12 47 48 -1 50
8 West Ham 34 13 9 12 54 63 -9 48
9 Chelsea 31 13 8 10 61 52 +9 47
10 Brighton 32 11 11 10 52 50 +2 44
11 Wolves 33 12 7 14 46 53 -7 43
12 Fulham 34 12 6 16 50 54 -4 42
13 Bournemouth 33 11 9 13 48 60 -12 42
14 Crystal Palace 33 9 9 15 42 56 -14 36
15 Brentford 34 9 8 17 52 59 -7 35
16 Everton 33 10 8 15 34 48 -14 30
17 Nott. Forest 34 7 9 18 42 60 -18 26
18 Luton 34 6 7 21 47 75 -28 25
19 Burnley 34 5 8 21 37 69 -32 23
20 Sheffield Utd 33 3 7 23 31 88 -57 16
Athugasemdir
banner
banner
banner