fim 18. október 2018 06:00
Ívan Guðjón Baldursson
Sjáðu markið: Rooney skoraði af 30 metra færi
Mynd: Getty Images
Wayne Rooney hefur farið vel af stað með DC United í bandarísku MLS deildinni og er kominn með 10 mörk og 7 stoðsendingar eftir 18 leiki.

DC United átti leik við Toronto í nótt og var Rooney hetja leiksins, enda gerði hann eina markið með stórkostlegri aukaspyrnu langt utan af velli.

Sóknarmaðurinn þrumaði knettinum upp í vinkilinn þar sem markvörður Toronto kom engum vörnum við.

Spyrnan var tekin af um 30 metra færi og er hægt að sjá hér fyrir neðan.




Athugasemdir
banner
banner
banner
banner
banner