Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fös 18. október 2019 14:21
Magnús Már Einarsson
Sky: Emre Can til Manchester United í janúar?
Mynd: Getty Images
Manchester United er að íhuga að kaupa miðjumanninn Emre Can frá Juventus í janúar. Sky Sports segir frá.

Hinn 25 ára gamli Can var í fjögur tímabil hjá Liverpool áður en hann fór frítt til Juventus sumarið 2018.

Can er ekki ofarlega í röðinni hjá Maurizio Sarri, þjálfara Juventus, þessa dagana.

Can hefur ekki byrjað einn einasta leik á tímabilinu og hann var ekki valinn í Meistaradeildarhóp félagsins.

Talið er að Juventus vilji fá 35 milljónir punda fyrir Can.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner