Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   þri 18. október 2022 06:00
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Bjargey, María og Nína framlengja við Gróttu
Mynd: Grótta
Grótta hefur framlengt samninga sína við þrjá leikmenn meistaraflokks kvenna. Það eru þær Bjargey Sigurborg Ólafsson, María Lovísa Jónasdóttir og Nína Kolbrún Gylfadóttir.

Bjargey er 28 ára miðjumaður og hefur verið lykilleikmaður í liðinu síðustu ár. Hún spilaði sinn 100. leik fyrir Gróttu núna í september og hefur skorað í þeim 12 mörk.

María hefur sömuleiðis verið lykilleikmaður í liðinu þrátt fyrir ungan aldur. María er kantmaður og hefur spilað 65 leiki fyrir Gróttu í meistaraflokki, hún lék sinn fyrsta leik árið 2019, þá 16 ára. Hún hefur skorað 23 mörk fyrir Gróttu.

Nína Kolbrún kom til félagsins árið 2021 en hafði áður leikið með Val. Nína er 25 ára miðjumaður og var hún gríðarlega mikilvægur leikmaður Gróttuliðsins fyrri part sumars árið 2021 þegar liðið lék í Lengjudeildinni. Nína varð fyrir því óláni að slíta krossband síðasta sumar og hefur hún verið í stífri endurhæfingu síðan. Það var því mikið gleðiefni þegar Nína spilaði sínar fyrstu mínútur í 14 mánuði í síðasta leik Gróttu í september síðastliðnum.

Dugnaður Nínu í meiðslunum hefur verið ótrúlegur og fagnar knattspyrnudeildin því að fá hana aftur á völlinn með liðinu. Það er mikið fagnaðarefni fyrir deildina að þessir þrír mikilvægu leikmenn framlengi samninga sína við félagið sem spilar í Lengjudeildinni á næsta ári.
Athugasemdir
banner
banner
banner