Barcelona vill Díaz frá Liverpool - Úlfarnir skoða markverði - City til í að hlusta á tilboð í Grealish
   þri 18. október 2022 06:00
Ívan Guðjón Baldursson
Simeone: Ronaldo var aldrei nálægt Atletico
Mynd: Getty Images

Diego Simeone var spurður út í orðróma sem sögðu Cristiano Ronaldo vera á leið til Atletico Madrid í sumar.


Simeone, sem þjálfari Atletico, segir ekkert hafa verið til í þessum sögusögnum.

„Litlu fuglarnir hvísluðu einhverju kolvitlausu að ykkur. Fólk segir stundum bara það sem það vill segja og skáldar sögur. Þetta á sér enga stoð í raunveruleikanum," sagði Simeone.

„Ronaldo er algjör hetja í sögu Real Madrid. Þetta væri eins og að sjá Martín Palermo eða Riquelme spila fyrir River Plate eða Ortega spila fyrir Boca. Það væri ekki hægt."


Athugasemdir
banner
banner
banner