Malen, Maguire, Rashford, Greenwood, Yoro, Eriksen og fleiri góðir í slúðri dagsins
   mán 18. nóvember 2019 11:30
Magnús Már Einarsson
Obi Mikel: Hazard latasti leikmaður sem ég hef æft með
Hazard í leik með Chelsea.
Hazard í leik með Chelsea.
Mynd: Getty Images
John Obi Mikel, fyrrum miðjumaður Chelsea, segir að Eden Hazard sé latasti leikmaður sem hann hefur spilað með á ferlinum. Þeir spiluðu fimm tímabil saman hjá Chelsea á sínum tíma.

„Latasti leikmaðurinn sem ég hef spilað með er Eden Hazard. Hazard er ótrúlega hæfileikaríkur. Hann er kannski ekki jafn góður og (Lionel) Messi en hann getur gert hvað sem er með boltann í fótunum," sagði Mikel.

„Hann vildi ekki leggja hart að sér á æfingum. Þegar við vorum að leggja hart að okkur stóð hann og beið eftir að æfingin myndi klárast. Á sunnudögum var hann alltaf maður leiksins. Þetta var ótrúlegt."

Mikel bætti síðan við að Frank Lampard hefði borið höfuð og herðar yfir aðra leikmenn þegar kom að því að leggja sig fram á æfingum á tíma sínum hjá Chelsea.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner