Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   fim 18. nóvember 2021 06:00
Brynjar Ingi Erluson
Real Madrid fylgist með sóknarmanni River Plate
Julian Alvarez er eftirsóttur
Julian Alvarez er eftirsóttur
Mynd: EPA
Spænska félagið Real Madrid fylgist náið með argentínska framherjanum Julian Alvarez sem er á mála hjá River Plate í heimalandinu en Marca greinir frá.

Alvarez er 21 árs gamall og samdi við River árið 2018 en hann fór á reynslu til Real Madrid og skoraði tvö mörk í æfingamóti þegar hann var aðeins 15 ára gamall.

Á þessu tímabili hefur hann skorað 15 mörk og lagt upp 6 í aðeins 16 leikjum og eru stór félög í Evrópu þegar farinn að horfa til hans fyrir næsta sumar.

Samkvæmt Marca þá hefur Real Madrid fylgst náið með honum og er að íhuga að leggja fram tilboð eftir tímabilið.

Alvarez spilaði fyrstu A-landsleiki sína fyrir Argentínu á þessu ári en þeir eru nú fjórir talsins.

Atlético Madríd, Milan og Juventus hafa öll verið í sambandi við River vegna Alvarez en ekkert formlegt tilboð hefur borist til þessa.
Athugasemdir
banner
banner