Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fim 18. nóvember 2021 19:06
Brynjar Ingi Erluson
Times: Lingard fer frá Man Utd næsta sumar
Jesse Lingard er líklega á förum frá United
Jesse Lingard er líklega á förum frá United
Mynd: EPA
Jesse Lingard, leikmaður Manchester United á Englandi, mun yfirgefa félagið næsta sumar en þetta kemur fram í frétt Times í kvöld.

Spiltími Lingard hjá United hefur verið af skornum skammti á þessari leiktíð og hefur hann einungis spilað 154 mínútur í öllum keppnum.

Englendingurinn spilaði afspyrnuvel með West Ham síðari hluta síðustu leiktíðar og hjálpaði liðinu að komast í Evrópukeppni en snéri til Man Utd aftur eftir lándsvölina.

Lingard hefur verið í viðræðum við United um nýjan samning síðustu vikur en samkvæmt Times þá slitnaði upp úr viðræðunum á dögunum.

Það virðist því fátt kom í veg fyrir að Lingard yfirgefi United næsta sumar en West Ham, Everton, Leicester og Newcastle eru meðal þeirra liða sem hafa áhuga á að fá hann.
Athugasemdir
banner