Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   þri 18. desember 2018 21:59
Ívan Guðjón Baldursson
Holland: Willem og AZ áfram í bikarnum
Mynd: Getty Images
Albert Guðmundsson lék síðustu 20 mínúturnar í auðveldum heimasigri AZ Alkmaar gegn Zwolle í hollenska bikarnum.

AZ var þremur mörkum yfir í hálfleik og var staðan orðin 5-0 þegar 50 mínútur voru búnar.

Alberti tókst ekki að bæta við marki í stórsigrinum en hann hefur verið mikið á bekknum hjá AZ í desember.

Kristófer Ingi Kristinsson sat þá allan tímann á bekknum er Willem II lagði AFC með þremur mörkum gegn engu. Bæði lið eru komin áfram í 8-liða úrslit.

AZ Alkmaar 5 - 0 Zwolle
1-0 O. Idrissi ('10)
2-0 O. Idrissi ('18)
3-0 G. Til ('26)
4-0 M. Seuntjens ('49)
5-0 F. Midtsjo ('50)
Rautt spjald: T. Lam, Zwolle ('39)

Willem II 3 - 0 AFC
1-0 D. Avdijaj ('18)
2-0 F. Sol ('37, víti)
3-0 A. Ozbiliz ('39)
Athugasemdir
banner
banner