Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   þri 18. desember 2018 21:42
Ívan Guðjón Baldursson
Ítalía: Jafnt hjá Bologna og Milan - Bakayoko rekinn útaf
Mynd: Getty Images
Bologna 0 - 0 AC Milan
Rautt spjald: Tiemoue Bakayoko, Milan ('76)

Viðureign Bologna gegn AC Milan var að ljúka með markalausu jafntefli þar sem gestirnir frá Mílanó þurftu að klára leikinn manni færri.

Leikurinn var nokkuð bragðdaufur og gerðist fátt marktækt. Tiemoue Bakayoko, sem er á láni frá Chelsea, fékk tvö gul spjöld á þriggja mínútna kafla í síðari hálfleik.

Þetta var þriðji tapleikur Milan í síðustu fjórum umferðum deildarinnar en félagið er sem fyrr í Meistaradeildarsæti, tveimur stigum fyrir ofan Lazio.

Bologna er áfram í fallbaráttunni, einu stigi frá öruggu sæti.
Athugasemdir
banner
banner