Nokkur meistaraflokkslið á Íslandi hafa ákveðið að styrkja björgunarstarf á Seyðisfirði með því að gefa sektarsjóð leikmanna.
Neyðarstigi var lýst yfir á Seyðisfirði í dag og bærinn rýmdur eftir að aurskriða féll þar með þeim afleiðingum að miklar skemmdir urðu á nokkrum húsum. Tvö hús eru ónýt eftir skriður þar undanfarna daga.
Mörg lið á Íslandi halda úti sektarsjóðum þar sem peningar greiða sektir fyrir hitt og þetta í sérstakan sjóð.

Karlalið Dalvíkur/Reynis og Leiknis F. og kvennalið FJarðabyggðar/Hattar/Leiknis F. hafa ákveðið að styrkja Björgunarsveitina Ísólf á Seyðisfirði og Rauða Krossinn á Seyðisfirði eftir fréttir dagsins.
Björgunarsveitin Ísólfur og Rauði Krossinn á Seyðisfirði fengu 89.500 krónur hvor um sig frá Fjarðabyggð/Hetti/Leikni og 56.100 krónur hvort frá Leikni F.
Björgunarsveitin Ísólfur
Kt: 580484-0349
Rkn: 0176-26-5157
Leikmenn Dalvíkur/Reynis hafa àkveðið að styrkja Björgunarsveitina Ísólf á Seyðisfirði og láta sektarsjóð síðasta sumars renna til þeirra. Við sendum baráttukveðjur til ykkar 💛🖤 @HuginnFC
— Dalvík/Reynir (@dalvik_reynir) December 18, 2020
— Leiknir F. (@Leiknirfask) December 18, 2020
Hjálpum Seyðfirðingum
Posted by Knattspyrnufélag Fjarðabyggðar - KFF - Fjarðabyggð on Föstudagur, 18. desember 2020
Leikmenn meistaraflokks kvenna hjá Fjarðabyggð/Hetti/Leikni hefur ráðstafað sektarsjóði liðsins...
Athugasemdir