Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
banner
   sun 18. desember 2022 10:00
Ívan Guðjón Baldursson
Sky: Chelsea getur keypt Hincapie fyrir 30 milljónir
Mynd: Getty Images

Chelsea hefur áhuga á miðverðinum Piero Hincapie, sem leikur með Bayer Leverkusen í þýsku deildinni og stóð sig vel með landsliði Ekvador á HM í Katar.


Josko Gvardiol, miðvörður RB Leipzig og Króatíu, er efstur á óskalista Graham Potter en Hincapie kemur þar á eftir.

Sky Sports greinir frá því að Chelsea gæti fest kaup á varnarmanninum í janúar fyrir 30 milljónir evra (26,2 milljónir punda).

Hincapie er aðeins 20 ára gamall og er fastamaður í hjarta varnarinnar bæði hjá Leverkusen og landsliði Ekvador.


Athugasemdir
banner
banner
banner
banner