Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   lau 19. janúar 2019 09:00
Elvar Geir Magnússon
Alexander-Arnold búinn að skrifa undir nýjan samning
Trent Alexander-Arnold,
Trent Alexander-Arnold,
Mynd: Getty Images
Bakvörðurinn Trent Alexander-Arnold hefur tekið hröðum framförum hjá Liverpool og nú er þessi tvítugi leikmaður búinn að gera nýjan samning við félagið.

Liverpool staðfesti á heimasíðu sinni í morgun að nýr samningur væri í höfn og haft er eftir Alexander-Arnold að hann sé mjög stoltur og hlakki til komandi afreka með uppeldisfélagi sínu.

Alexander-Arnold skrifaði síðast undir samning 2017 en hann hefur fest sig í sessi í hægri bakverði Liverpool og spilaði á HM síðasta sumar.

Nýlega skrifaði vinstri bakvörðurinn Andrew Robertson undir nýjan samning við Liverpool.

Trent Alexander-Arnold er á meiðslalista Liverpool en hann er að glíma við meiðsli í hné. Hann mun missa af heimaleikjum gegn Crystal Palace og Leicester.



Athugasemdir
banner
banner
banner