Ein breyting hefur verið gerð á byrjunarliði Manchester United sem að mætir Brighton núna klukkan 15:00.
Luke Shaw veiktist í upphitun og Ole Gunnar tekur hann því út úr byrjunarliðinu. Diogo Dalot kemur inn í liðið fyrir Englendinginn.
Byrjunarlið Manchester United:
De Gea, Young, Dalot, Jones, Lindelof, Pogba, Matic, Lingard, Herrera, Rashford, Martial
Ole Gunnar getur unnið sinn sjöunda leik í röð með sigri á Brighton.
Leikurinn er í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport og það er enginn annar en Rikki G sem að lýsir leiknum.
Diogo Dalot has been called up to the Manchester United starting XI as Luke Shaw has come down with an illness. #MUFC
— Football Tweet (@Football__Tweet) January 19, 2019
⚽🔴
Athugasemdir