Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   lau 19. janúar 2019 18:24
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Einkunnir Man Utd og Brighton: Rashford sjóðheitur
Rashford skoraði laglegt mark. Hann er að leika mjög vel undir stjórn Solskjær.
Rashford skoraði laglegt mark. Hann er að leika mjög vel undir stjórn Solskjær.
Mynd: Getty Images
Manchester United lagði Brighton að velli með naumindum í ensku úrvalsdeildinni í dag.

Paul Pogba og Marcus Rashford voru á skotskónum fyrir United en Pascal Gross minnkaði muninn á 72. mínútu. Brighton pressaði á United á síðustu mínútunum en náði ekki að skora og lokatölur því 2-1 á Old Trafford.

Hér að neðan má sjá einkunnagjöf Sky Sports úr leiknum.

Man Utd: De Gea (6), Young (6), Lindelof (7), Jones (7), Dalot (6), Matic (7), Herrera (8), Pogba (7), Lingard (6), Martial (7), Rashford (8).

Varamenn: Mata (6) - Lukaku og Darmian spiluðu ekki nóg til að fá einkunn.

Brighton: Button (5), Montoya (5), Duffy (7), Dunk (6), Bong (5), March (6), Stephens (5), Propper (6), Gross (6), Locadia (5), Murray (6).

Varamenn: Knockaert (6), Andone (5) - Kayal spilaði ekki nóg til að fá einkunn.

Maður leiksins: Marcus Rashford
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner