Thierry Henry, þjálfari Mónakó í frönsku úrvalsdeildinni, er að íhuga þann möguleika á að fá Marouane Fellaini frá Manchester United á láni út tímabilið.
Henry tók við Mónakó í molum á þessari leiktíð og reynir nú af krafti að rétta úr kútnum og koma liðinu úr fallbaráttu.
Hann vill fá öflugan miðjumann sem getur hjálpað liðinu í botnbaráttunni og telur hann Fellaini vera svarið en hann er að fá lítinn spiltíma undir stjórn Ole Gunnar Solskjær.
Franski miðillinn RMC heldur því fram að Mónakó hafi þegar lagt fram lánstilboð í Fellaini en ekki er vitað hvort leikmaðurinn hafi áhuga á að fara þangað.
Henry þekkir Fellaini vel en Henry er aðstoðarþjálfari belgíska landsliðsins og ætti það að auðvelda ákvörðun miðjumannsins.
Mónakó er í nítjánda sæti deildarinnar þremur stigum frá öruggu sæti.
Athugasemdir