Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   lau 19. janúar 2019 13:06
Arnar Helgi Magnússon
Lambert greiðir ferðakostnaðinn fyrir stuðningsmenn
Mynd: Getty Images
Ipswich heimsækir Blackburn í ensku Championship deildinni í dag. Flautað verður til leiks á Ewood Park, heimavelli Blackburn, klukkan 15:00.

Gengi Ipswich á leiktíðinni verði afleitt en liðið hefur unnið þrjá leiki í deildinni og situr í botnsætinu, sjö stigum frá öruggu sæti.

Allra hörðustu stuðningsmenn Ipswich, 50 talsins, ferðast til Ipswich í dag og fylgjast með sínum mönnum.

Paul Lambert, þjálfari Ipswich, sendi öllum þeim stuðningsmönnum sem eru að fara á leikinn bréf, þess efnis að hann myndi greiða ferðakostnaðinn úr sínum eigin vasa.

„Ég er gífurlega þakklátur fyrir stuðninginn og þetta er ein leiðin til þess að segja takk," segir meðal annars í bréfi Lambert en það má sjá í heil sinni hér að neðan.



Athugasemdir
banner
banner