Mohamed Salah er búinn að skora 50 mörk í ensku úrvalsdeildinni, 48 mörk fyrir Liverpool og tvö fyrir Chelsea.
Salah skoraði tvennu í dag er Liverpool vann 4-3 sigur á Crystal Palace.
Salah hefur verið algjörlega frábær síðan hann gekk í raðir Liverpool frá Roma fyrir síðasta tímabil.
Það tók Salah 72 leiki að skora þessi mörk, en aðeins þrír leikmenn hafa verið fljótari en Salah að skora 50 mörk í ensku úrvalsdeildinni. Það eru Andy Cole, Alan Shearer og Ruud van Nistelrooy.
Það tók Salah jafnmarga leiki og Fernando Torres að skora 50 mörk, en neðar á listanum eru leikmenn eins og Sergio Aguero og Thierry Henry.
⚽ Mohamed Salah has scored his 50th PL goal (48 Liverpool, 2 Chelsea).
— Sky Sports Statto (@SkySportsStatto) January 19, 2019
Only 3 players in competition history have been quicker in reaching the 50-goal milestone pic.twitter.com/f6JRZPNhWl
Athugasemdir