Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   lau 19. janúar 2019 12:13
Arnar Helgi Magnússon
Sjáðu mörkin og helstu atvik úr leik Breiðabliks og HK
Hendrickx gerði mark Breiðabliks.
Hendrickx gerði mark Breiðabliks.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
HK og Breiðablik gerðu 1-1 jafntefli í A-deild Fótbolta.net mótsins í gærkvöldi en leikið var í Kórnum.

Belgíski leikmaðurinn Jonathan Hendrickx kom Blikum yfir á 23. mínútu með góðu skoti fyrir utan teig áður en Kolbeinn Þórðarson átti gott skot í slá.

Aron Bjarnason átti stuttu síðar skalla í slá og þá átti Kolbeinn annað sláarskot áður en flautað var til loka fyrri hálfleiks. Birkir Valur Jónsson jafnaði metin fyrir HK á 65. mínútu.

Blikar voru ekki með heppnina með sér í þessum leik því Óskar Jónsson átti skot í stöng í síðari hálfleik en lokatölur 1-1 .

Blikar eru í efsta sæti með 4 stig í riðli 2 en HK í öðru sæti með 2 stig en bæði lið eiga einn leik eftir í riðlinum.

Hér að neðan má sjá mörkin og helstu atvikin úr leiknum.

Athugasemdir
banner
banner
banner