Man City ræðir um möguleg kaup á Ait-Nouri - Adarabioyo eftirsóttur - Newcastle vill Sesko
   lau 19. janúar 2019 17:17
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Spánn: Real Madrid með frábæran sigur á Sevilla
Mynd: Getty Images
Real Madrid 2 - 0 Sevilla
1-0 Casemiro ('78 )
2-0 Luka Modric ('90 )

Real Madrid vann frábæran sigur á Sevilla þegar liðin mættust í deild þeirra bestu á Spáni í dag. Real hefur verið í vandræðum á þessu tímabili og þurfti á sigri að halda í dag.

Það gekk erfiðlega hjá Madrídingum að brjóta ísinn en það tókst loks á 78. mínútu. Þar var að verki miðjumaðurinn Casemiro með þrumufleyg.

Fagnaðarlætin voru mikil á Santiago Bernabeu og þau urðu enn hærri þegar Luka Modric skoraði annað markið í uppbótartíma. Miðjumennirnir að sjá um þetta fyrir Real í dag.

Lokatölur 2-0 og er Real nú komið upp fyrir Sevilla í þriðja sæti deildarinnar.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner
banner