Theódór Elmar Bjarnason þreytti frumraun sína með Gazisehir Gaziantep í tyrknesku B-deildinni í dag.
Elmar yfirgaf tyrkneska liðið Elazigspor fyrir áramót þar sem hann hafði ekki fengið greidd laun en Elazigspor leikur einmitt líka í B-deildinni í Tyrklandi.
Orðrómur fór af stað um að Elmar myndi snúa aftur í KR en hann lék með liðinu í Bose-mótinu fyrir áramót. Það varð hins vegar ekkert að því.
Gazisehir er í toppbaráttu í B-deildinni og mætti liðið í dag Denizlispor, sem er í öðru sæti. Úr varð hörkuleikur en hann endaði með 1-0 sigri Denizlispor.
Elmar kom inn á sem varamaður þegar 10 mínútur voru eftir af venjulegum leiktíma.
Gameday💪🏻💪🏻💪🏻 lets go @GazisehirFK pic.twitter.com/mQIoPbzYLV
— Elmar Bjarnason (@ElmarBjarnason) January 19, 2019
Athugasemdir