Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mið 19. janúar 2022 10:30
Elvar Geir Magnússon
Kounde skaut til baka á stuðningsmann á Twitter
Jules Kounde.
Jules Kounde.
Mynd: Getty Images
Miðvörðurinn Jules Kounde missir af leik Sevilla gegn Valencia í kvöld vegna meiðsla sem hann hlaut gegn Real Betis um helgina.

Einhverjir stuðningsmenn Sevilla eru óánægðir með Kounde sem hefur ekki farið leynt með að hann vilji yfirgefa félagið.

Einn stuðningsmaður skrifaði á Twitter að Kounde gæti vel spilað þrátt fyrir smávægileg meiðsli og setti spurningamerki við hugarfar leikmannsins.

Færslan fór ekki framhjá Kounde sem svaraði sjálfur: „Ert þú læknir? Gagnslaus."

Kounde hefur leikið mjög vel fyrir Sevilla síðan hann kom 2019 og hefur vakið athygli og áhuga stærri félaga. Síðasta sumar var hann ósáttur við að tilboðum í sig hafi verið hafnað. Chelsea reyndi að fá hann.
Athugasemdir
banner
banner
banner